
Með því að leggja inn pöntun hjá LN Signature Sweden IS samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
Hafir þú spurningar varðandi þá, vinsamlegast sendu fyrirspurn á info@ln.is
Öll verð birtast með vsk.
Ath. vörur eru aðeins fyrir úskrifaða naglafræðinga
Greiðsla
Hægt er að greiða með korti, millifærslu, netgíró eða pei.
Sé greiðsla gerð með millifærslu skal leggja inn á reikning innan sólahrings frá kaupum, hafi greiðsla ekki borist innan þess tíma fer vara/vörur aftur í sölu.
Reikningsnúmer: 0133-26-003195
Kt: 600521-2170
Sendingarmáti
Pantanir eru sendar með Íslandspósti eða Dropp. Burðagjald reiknast á síðunni. Sendingarkostnaður er mismunandi eftir sendingaleiðum sem viðskipta vinir velja sjálfir. LN Signature Sweden IS tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða lúgur, í slíkum tilvikum getur flutningsaðili sent pöntunina til baka og lendir allur viðbótakostnaður í kjölfari þess á þeim viðskiptavini.
Vörur fara frá okkur alla jafna næsta virka dag með fyrirvara um að varan sé til á lager annars er hún send um leið og hún kemur í hús.
Varan er 2-4 virka daga á leiðinni með flutningsaðila. Allar sendingar eru sendar sem bögull á pósthús og eru þær því tryggðar og þeim fylgir sendinganúmer. LN Signature Sweden IS ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi og gilda afhendingar-,ábyrgðar og flutningsskilmálar flutningsaðila um afhendingu vörunnar
Að svara tölvupósti getur teki 1-3 virka daga (fer eftir álagi).
Ef varan er sótt þarf að hafa samband í sima 776-0943 til að finna hentugan tíma til að sækja vöruna.
ATH ekki eru gefin lof um að hægt sé að sækja samdægurs
Vöruskil
Hjá LN Signature Sweden IS er tveggja vikna skilafrestur, nótu eða afrit af vörukaupum þarf að sýna þegar vörunni er skilað, varan þarf að vera í upprunalegu ástandi og innsigli má ekki vera rofið. Hægt er að fá inneignarnótu, nema ef um galla er að ræða þá er hægt að fá endurgreitt. Ekki er hægt að skila litum og öðrum vörum sem ekki er innsigli á. Ef þú vilt skila hafðu þá samband við okkur á instagram @lniceland, eða info@ln.is
Ef skila þarf vöru útá landi þarf að vara að vera komin til okkar áður en endurgreiðsla eða inneignarnóta er gefin út.
Galli
Ef vara reynist gölluð eða innsiglið er rofið fyrir, ber að tilkynna LN Signature Sweden IS við móttöku á vöru. Mun þá varan verða endugreidd að fullu eða ný vara úthlutuð.
Fyrirvari
LN Signature Sweden IS áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, og myndir eru birtar með fyrirvara um myndabrengl.
LN Signature Sweden IS áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt eða uppseld erlendis og ekki hægt að panta. Í þeim tilfellum fær viðskiptavinur endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru.
Litbrigði
LN Signature Sweden IS ábyrgist ekki að litbrigði mynda sé 100% eins og þau birtast í raunveruleikanum.
Þetta gæti stafað af ólíkum eiginleikum tölvuskjáa, eða lýsingu á ljósmyndinni.
Persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. LN Signature Sweden IS mun ekki í neinum tilvikum
veita þriðja aðila persónuupplýsingar viðskiptavina sinna, nema svo beri skylda gagnvart lögum.
Skólinn
Öll skráning á námskeið er bindandi ef dagsettning og tími hefur verið staðfestur og fæst ekki endurgreitt.